Hildigunnur, Einar og Guðrún
16 years ago
Andartök úr lífi feðganna Þórs Steinarssonar og Ragnar Steins og Þorsteins Elvars Þórssona
Þorsteinn gæðir sér á hressingu. Tindurinn í baksýn.
Gengið upp troðning á miðhnjúknum.
Horft niður eftir Norðurárdal úr skarðinu milli tveggja austustu tindana.
Þannig var nestið borðað niðri á Austurvelli. Hive kerran koma aðsvífandi þar sem við flatmöguðum undir gráelrinum og fór með strákana í túr um bæin, sem var að sögn mjög gaman en fólkinu í bænum var víst nokkuð starsýnt á farþegana (þó líklega hafi það verið farartækið sem vakti áhugann).


Feðgarnir eru loksins allir komnir á hjól og getum því sameinað samveru, útivist, hreifingu og ýmislegt fleira í einum og sama gjörningnum. Um daginn hjóluðum við frá mömmunni og heim í Stangarholtið, en núna fórum við í almennilegan túr. Við byrjuðum á því að fara niður í Hljómskálagarð, þar sem klifurgrindin fékk að finna aðeins fyrir því - en ekki of lengi því að við vorum á massívu tímaplani. Frá Hljómskálagarði fórum við upp að Háskóla og niður Suðurgötuna í áttina að Skerjafirði. Þar settumst við á bekk og borðuðum nesti og héldum svo áfram í átt að Nauthólsvík. Í Nauthólsvík var farið að hvessa og heyrðist kvart úr horni. Þá var mannskapnum skipað að setja í hærri gír og bruna í skjól trjánna í Fossvogskirkjugarði.
Þegar þangað var komið stigum við af fákunum og röltum okkur í rólegheitum meðfram legsteinunum upp eftir öskjuhlíðinni. Nú fór að styttast í lok túrsins og þegar við vorum við það að koma heim stundi ónefndur sonur upp úr sér að núna væri hann til í að snúa við og fara heim... þá höfðum við hjólað í einn og hálfan tíma og lagt að baki rúmlega tíu kílómetra. :)
júklingasúpu - eina vitið!