Við komum fyrir nokkrum dögum úr ljómandi góðri ferð austan úr Þjórsárdal. Við stoppuðum eitt andartak á Flúðum þar sem Bylgjuhraðlestin hafði hertekið svæðið með tilheyrandi hávaða- og sjónmengun... þannig að við hröðuðum okkur út í óbyggðirnar - ekki síst að ósk strákana - sem leið lá inn eftir Þjórsárdal. Áður en við komum okkur fyrir á Tjaldstæðinu í Sandártungu skoðuðum við þjóðveldisbæinn við Búrfellsvirkjun og fórum í sund í Reykholtslaug. Sandártunga er sæmilegasta tjaldsvæði og hefur sér helst til ágætis að þar við rennur Sandá, fallegur og leikjavænn vatnsstraumur, sem við gerðum að okkar megin viðverustað í útivistinni.
Veðrið var einstaklega gott þangað til á sunnudeginum að fór að rigna... enda komum við okkur heim hið snarasta eftir að hafa mátt þola fimbulkulda á næturnar. Ekki mátti maður við því að geta ekki komið í sig il yfir daginn. Ég hef aldrei komið þarna áður en hef sannarlega hug á því að rannsaka betur svæðið þegar tækifæri gefst...
Hildigunnur, Einar og Guðrún
15 years ago
2 comments:
Þetta hefur verið kósí ferðalag hjá ykkur feðgum. Og ennþá flottara myndasýning með :) Nú fer ég að æfa mig.
Búin að bíða spennt eftir nýju bloggi... Skemmtilegar myndir :)
Post a Comment